Svavar Knútur Reykjavík, Café Rosenberg, 10 Nov 2023 – Songkick
Svavar Knútur Concert Tickets - 2026 Tour Dates
Past concert

Svavar Knútur

Friday 10 November 2023

Venue

Café Rosenberg
Vesturgata 3, 101, Reykjavík, Iceland

Additional details

Doors open: 20:00

Svavar Knútur söngvaskáld heldur tónleika á Café Rosenberg (áður Stofunni, áður Fríðu frænku), föstudagskvöldið 10. nóvember næstkomandi kl. 20.00.
Það er dálítið síðan Svavar Knútur hefur haldið tónleika í Reykjavík, enda flutti hann fyrir rúmu ári ásamt fjölskyldu sinni Norður í land, af einskærri fórnfýsi, til að minnka álagið á fasteignamarkaðinn í Reykjavík. Því vill hann meina að þessir tónleikar séu ýmist fagnaðarefni fyrir vini og velunnara sunnan heiða, eða bansett leiðindi fyrir fólk sem hélt það væri nú laust við þennan gaulandi, rétthugsandi hirðtrúbador "góða fólksins".
Hvorum hópnum sem þið tilheyrið, þá er hér um að ræða kjörið tækifæri til að annað hvort flykkjast á eða forðast Café Rósenberg föstudagskvöldið 10. nóvember.
Á tónleikunum mun Svavar Knútur að sjálfsögðu ausa úr viskubrunni sínum og syngja fullt af lögum, frumsömdum og sígildum í bland.
Miðaverð er 3.000 kr. og eru allir velkomnir. Meira að segja hipsterar, flottræflar, flautaþyrlar og spraðabassar hvers konar. Ráðherrar og þingmenn ríkisstjórnarflokka auk yfirstjórnenda og fjármagnseigenda í bönkum og sjávarútvegsfyrirtækjum greiða sérstakt stimpilgjald, kr. 5.000.
Sjáumst elghress,
Svavar Knútur

event-page-view